HRFÍ býður ræktendum félagsins að auglýsa sína ræktun á ræktendalistum sinna tegunda.
Aðeins er bent á ræktendur sem eiga ræktunarnafn og eru virkir félagsmenn (með greitt árgjald).

Skráðir ræktendur, Australian shepherd:
Ræktunarnafn: Víkur
Nafn: Ólafur Örn Ólafsson og Maríanna Gunnarsdóttir Sími: 894-6611 Netfang: info@vikurkennel.com Heimasíða: www.vikurkennel.com |
Ræktunarnafn: Víðigerðis
Nafn: Svava Björk Ásgeirsdóttir og Kristmundur Anton Jónasson Sími: 899-5303 eða 5668454 Netfang: [email protected] Heimasíða: www.vidigerdis.com |
Tegundakynning á Australian shepherd
FCI- Staðall N°342
Tegundarhópur 1. Fjárhundar
Hæð á herðarkamb
Rakkar 51-58 cm. Tíkur 46-53 cm.
Uppruni/saga
Þrátt fyrir nafnið á tegundinni, Australian shepherd, á Aussie rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna. En talið er að þeir hafi komið með áströlskum fjárhirðum til Bandaríkjanna á 19. öld og bandarískir bændur hafi þróað tegundina eins og við þekkjum hana í dag.
Eðli
Aussie eru gáfaðir, vinnuglaðir, miðlungs stórir hundar með sterkt fjár- og varðeðli. Þeir eru tryggir og góðir félagar, húsbóndahollir og góðir fjölskyldu hundar sem elska að gera allt með húsbónda sínum. Þeir eru frábærir vinnuhundar í ýmsa vinnu og mjög fljótir að læra. Sumir Aussie eru vinalegir við alla, en tegundin er hinsvegar oft gjörn á að vera hlédræg og vör um sig við ókunnuga. Slíkir hundar þurfa jákvæða upplifun af fólki án þvingunar. Þar sem Aussie hefur sterkt varðeðli tekur hún oft að sér það hlutverk að passa fjölskyldu og heimili sem bæði getur verið jákvætt og neikvætt. Eins og með alla hunda er afar mikilvægt að umhverfisþjálfa Aussie. Almennt hentar tegundin vel með öðrum hundum og dýrum og eru þeir yfirleitt mjög barngóðir – en hafa þarf í huga smalaeðlið í þeim.

Bygging
Byggingarlag Aussie er þannig að lengd á búk skal vera örlítið lengri en hæð á herðakamb. Höfuðkúpa er svipuð að lengd og trýni hundsins, augu aussie eru möndlulaga með blíðan svip en viðurkenndir augnlitir eru brúnn, blár, amber eða blanda af þessum litum af öllu tagi. Háls skal vera í meðallagi og bakið á að vera beint og kröftugt frá herðablöðum að mjaðmaliðum. Fjölbreytileiki er í lengd á skotti á aussie hundum, en þeir geta fæðst skottlausir, með dindil, hálfskott og svo heilskott. Í upprunalandinu Ameríku eru flestir hundar skottstífðir, en slíkt er ekki leyfilegt hérlendis. Fætur skulu vera sterkir og einkennast af sterkum beinum. Hreyfingarnar eiga að vera fjálslegar sýnum, mjúkar og auðveldar fyrir hundinn. Skal vera sjáanlegur munur á stærð á rakka og tík.
Feldur
Aussie hefur óvenjulega og fjölbreytta liti, hver hundur með einstakt feldmynstur þannig að það eru engir tveir hundar eins. Feldurinn getur verið bæði sléttur og liðaður, vatnsheldur og af miðlungs lengd. Aussie hefur tvöfaldan feld en undirfeldurinn ræðst af mestu af búsetu hans (heitt eða kalt veðurfar). Feldur er stuttur og mjúkur á höfði, eyrum, framan á framfótum og á hæklum.
Þjálfun/hreyfing
Aussie er orkumikil tegund með mikið smala og varðeðli, Aussie þarfnast daglegrar hreyfingar. Þrátt fyrir að sumir hundar séu hlédrægir við ókunnuga þráir Aussie ekkert meira heldur en að vera nálægt fjölskyldu sinni. Aussie er frekar auðþjálfuð tegund, enda telst hún gáfuð og mjög áhugasöm um vinnu. Þeir eru með mikla orku og þurfa einhverja vinnu eða verkefni, til dæmis er að smala eða læra nýja hluti.
Heilsa
Heilsa Aussie er heilt yfir frekar góð en eins og í öllum tegundum geta heilsufarskvillar komið upp. Mikilvægt er að fylgjast með geni í hverjum hundi sem kallað er MDR1 en jákvæð svörun við slíku geni getur valdið lífshættulegu ofnæmi við ákveðnum lyfjum sem finnast m.a. í ormalyfjum hesta auk fleiri lyfja, líf hunda með jákvæða svörun við MDR1 er þó mjög eðlilegt og gott sé þeim haldið frá þessum lyfjum.
Litir
Bláyrjóttur, rauðyrjóttur, rauður og svartur – allt með eða án hvítra og/eða tan merkinga.